| swearing at motorists |
BANDLIVESTUDIOWEBSTORE |
review taken from hljomalind
Eins og nafn þessarar safnplötu gefur kannski til kynna þá hefur hún að geyma söng án hljóðfæraleiks. Skífan inniheldur samtals tuttugu og fjögur lög frá jafnmörgum flytjendum. Lögin eru æði misjöfn eins og gengur og gerist með svona safnplötur. Mia Doi Todd flytur lag hinnar frönsku Edith Piaf "La Vie En Rose" en fellur þó í skugga dívunnar. Mark Kozelek, höfuðpaur Red House Painters, er einlægur að vanda. Nikki McClure á fremur rembulegt og ekki svo spennandi lag. Besta söngl þessarar skífu á án Pedro The Lion, þeir byggja sitt lag upp á mjög samhljómandi og skemmtilegan máta. Jandek eiga lagið "Om" og er það bara eitt langt leiðinda oommmm.... Jarboe eru ekki ólíkir Sigur Rós með sitt innhverfa höfrungasöngl. Dave Fischoff hvíslsönglar sitt ambient sem heitir "Under The Rug".
Það þarf nú varla að kynna Low-hjónin Mimi Parker og Alan Sparhawk fyrir nokkrum og eins flest sem þau gera er "Kindly Blessed" undurfagurt. Einn nýjasti meðlimur Sub Pop-fjölskyldunnar, Damien Jurado, á hér fínan söng. The Grifters herma eftir snemma sjöundaáratugs rokki í "Hits Keep Comin'". Gospelsfjölskyldan hressa sem blótar ekki; Danielson Famile eru fín í "Allhallow's Eve". Swearing At Motorists blóta fyrrverandi kærustu í samsöng. Fyrrum Bastro- og Gastr Del Sol- meðlimurinn er einlægur í sínum svertingjasálmi. Þau sem fíla lágfitlsflipp Modest Mouse gætu fílað "Leaflets Gabe" en ég geri það ekki. Richard Buckner og P.W. Long eru eins og klipptir út úr kvikmyndinni "O Brother Where Art Thou" í suðurríkjajóðli sínu. Framúrstefnugúrúinn Elliot Sharp á engan sérstakan sprett hérna. Jason Molina eða Songs: Ohia hefur hljómað mun betur en hann gerir hérna. Tim Foljahn og Margaret Muncheimer taka hér þekkt lag, "Swing Lo". The Japonize Elephants syngja hér kristilegan um einhvern Daniel. The Panoply Academy eiga lokasönglið á þessari skífu og er það leikur með segulbönd og effekta. Hljómar eins og undirspil í framúrstefnulegu rappi á köflum.
Þau sem vilja kynna sér hvernig má leika sér að mannsröddinni skulu tékka á þessu, aðrir skulu forðast.
Benedikt Reynisson
for questions or comments contact: webmaster@swearingatmotorists.com